top of page

Ási, Guðjón og Kristinn með sigur í 1. umferð Kópavogsdeildarinnar

  • pfk111
  • Apr 19
  • 2 min read

Ási Harðar, Kristinn Snæland og Guðjón H
Ási Harðar, Kristinn Snæland og Guðjón H

Fyrsta umferð í Kópavogsdeildinni fór fram miðvikudaginn 16. apríl. 19 keppendur mættu til leiks og voru þrjár deildir spilaðar þar sem leikmönnum var raðað í deildir miðað við fyrri árangur í keppni og viðburðum félagsins. Spilað var 501, best af 5 alla leið í öllum deildum. Í 1. og 2. deild voru spiluð undanúrslit og úrslitaleikur fyrir sigur í deildinni.






Í 1. deild voru hörkuspilarar.

Ási Harðar sigraði fyrstu umferð í 1. deild
Ási Harðar sigraði fyrstu umferð í 1. deild

Margir skemmtilegir leikir voru spilaðir og fóru nokkrir í odda. Ási spilaði rosalega vel og voru margir leikirnir hans yfir 60 avg. Einnig var hinn 15 ára gamli Kollbeinn frábær og var sá eini sem vann Ása í riðlinum í hörkuleik 3-2 með 63 avg, einnig tók hann leik upp á 70 avg í mótinu. Það má minnast á að hann tók 14 pílna legg í mótinu og auðvitað eitt 180 líka.


Í 2. deild voru öflugir leikmenn.

Guðjón H sigraði fyrstu umferð í 2. deild
Guðjón H sigraði fyrstu umferð í 2. deild

Aldursdreifing leikmanna var töluverð í deildinni þar sem hinn 72 ára Guðjón H og 12 ára Ísak Máni stigu ölduna saman. Nokkrir hörkuleikir fóru odda og gaman að segja frá því að Guðjón H tók 180 í mótinu. Annars vann hinn síungi Guðjón H. aðra deild með því að vinna Sigga Þ. í úrslitaleik um sigurinn.



Í þriðju deild var mikil keppni.



Kristinn Snæland vann fyrstu umferð í 3. deild
Kristinn Snæland vann fyrstu umferð í 3. deild

Í 3. deild voru nokkrir leikmenn að keppa á sínu fyrsta móti og margir að taka skrefið frá opnum kvöldum til keppni. Hörð barátta var um efstu sæti og leikir jafnir og skemmtilegir. Valdimar tók frábært útskot á búlli en hann var einmitt á sínu fyrsta móti auk þess sem margar flottar pílur flugu í deildinni. Svo fór að Kristinn Snæland vann riðilinn en hann var að spila mjög vel og vann alla sína leiki. Hörð barátta var um 2. sætið en leggjafjölda þurfti til að skera úr um það og fór svo að Karl Víðir fer upp með Kristni.



Hér má smella á Stigalistan til sjá Kópavogsdeildina.


Næsta umferð fer fram miðvikudaginn 23. apríl klukkan 19:30 en húsið opnar kl. 19:00.

Allir félagsmenn velkomnir að mæta, skráning er á abler.io

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page