2. umferð Haustmótaraðar Pingpong.is - úrslit
- pfk111
- Oct 15, 2024
- 1 min read

Önnur umferð Haustmótaraðar Pingpong.is fór fram fimmtudaginn 10. október og tókst afar vel. Alls tóku 13 leikmenn þátt í keppninni, þar sem spilað var í riðlum, en átta bestu komust áfram í útsláttarkeppni. Leikmenn sýndu góða takta og mörg góð tilþrif litu dagsins ljós.
Svo fór að Atli Þór stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins eftir harða keppni og tryggði sér þar með mikilvæg stig í stigakeppninni en hann hefur titil að verja. Í öðru sæti varð Helgi Freyr, en Atli Þór og Helgi Freyr eru sjóðandi heitir þessa dagana. Kristján Sig og Marco deildu 3.-4. sæti eftir jafna og spennandi leiki í undanúrslitum.
Keppnin heldur áfram næstu vikur og eru alls sex umferðir á dagskrá. Að loknum öllum umferðum gilda fjórar bestu umferðirnar til stiga, sem gerir hverja umferð mikilvæga fyrir þá sem vilja tryggja sér góða stöðu í stigakeppninni.
Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábæra frammistöðu og skemmtilega kvöldstund. Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 17. október kl. 19:30 og hvetjum við alla áhugasama til að mæta og taka þátt í góðri keppni.
Hér er linkur á stöðutöflu Pingpong.is mótaraðarinnar https://docs.google.com/spreadsheets/d/1NQ2LIju6As_CBkWNehGj-Z6C44ZA4iVoJAmK2F2WwS0/edit?gid=0#gid=0
Commenti