3. umferð Pingpong.is mótaraðarinnar - úrslit
- pfk111
- Oct 25, 2024
- 1 min read

Pingpong.is mótaröðin: Þriðja mótið haldið 17. október 2024
Fimmtudaginn 17. október fór fram þriðja kvöld Pingpong.is mótaraðarinnar í Pílufélagi Kópavogs. Þetta var þriðja mótið af sex en fjögur bestu kvöldin telja til stiga í stigakeppninni. Mótið var vel sótt og mættu alls 12 keppendur.
Spilað var í tveimur riðlum, þar sem fjórir efstu úr hvorum riðli komust áfram í 8 manna úrslit. Eftir spennandi viðureignir sigraði Jón Bjarmi úrslitaleikinn gegn Halla Eysteins í flottum leik, þar sem báðir spiluðu með tæplega 70 í meðaltal og úrslit réðust í oddalegg.
Helgi Freyr og Sigurður Þorsteinn deildu 3.-4. sæti, en Atli Þór, Marco, Þórir og Tjúlli lentu í 5.-8. sæti. Mótið var skemmtilegt og spennandi frá upphafi til enda.
Fjórða mótið í mótaröðinni verður haldið næstkomandi fimmtudag, 24. október kl. 19:30. Allir eru velkomnir!
Comentarios