top of page

Kristján Sig, Kolbeinn og Pétur unnu sínar deildir í þriðju umferð Kópavogsdeildarinnar.

  • pfk111
  • May 2
  • 2 min read



Þriðja umferð Kópavogsdeildarinnar var haldin miðvikudaginn 30. apríl og mættu 21 keppandi til leiks. Alls var leikið í þremum deildum. 1. deild var átta manna, 2. deild var sjö manna og 3. deild var sex manna. Mjög góð stemning var í Digranesinu þetta kvöld og skemmtu leikmenn sér vel. Gaman er að segja frá því að Baldur Þórðarson tók sitt fyrsta 180 í 3. deildinni og Sigurður Þorsteinsson smellti í 180 leik eftir leik í 2. deildinni. Elís Rúnar Elísson tók tvö 180 í einum leik en hann getur ekki snert pílur án þess að það rigni 180. Ási Harðar var svo allra heitastur og smurði 5 sinnum 180 í spjaldið í mótinu en það er met í keppni í félaginu.


Kristján Sig sigurvegari þriðju umferðar í 1. deild
Kristján Sig sigurvegari þriðju umferðar í 1. deild

Hágæða leikir voru hjá Ása í efstu deild í þessari umferð. Þeir sem ætluðu að eiga roð í Ása þurftu að spila vel yfir 70 avg. Ási tók 14 pílna legg og átt leik upp á 76 avg. Einnig tók hann fimm sinnum 180. Ási var efstur í deildinni fyrir útsláttin, en hann tapaði aðeins tveim leggjum í deildinni, báðum á móti Kristjáni. Kristján mætti vel stemmdur í útsláttinn og náði hefndum gegn Ása og vann úrslitaleikinn 3-0. Kristján spilaði mjög vel í úrslitum og var með 73 í avg. Til hamingju með sigurinn Kristján 🏅

Kolbeinn Gestur er sigurvegari þriðju umferðar í 2. deild
Kolbeinn Gestur er sigurvegari þriðju umferðar í 2. deild


Kolbeinn spilaði frábærlega í 2. deild. Hann tapaði aðeins 4 leggjum af 34 í þessari þriðju umferð Kópavogsdeildarinnar. Hann endaði úrslitaleikinn við Sigga Þ að taka hátt útskot út. Hann átti 104 eftir og tók 18-T18-D16 út. Vel gert Kolli og til hamingju með sigurinn 🏅


Pétur er sigurvegari þriðju umferðar í 3. deild
Pétur er sigurvegari þriðju umferðar í 3. deild

Pétur var að spila vel og vann örugglega 3. deildina. Það munaði svo aðeins leggjum hvort að Guðjón Dan eða Jóel færu upp með Pétri. En hinn öflugi Guðjón Dan vann á leggjamun og fer upp í 2. deild.

Til hamingu Pétur með sigurinn 🏅



Lokaorð: Mjög vel heppnað kvöld og greinilegt að margir erum að taka miklu framförum síðustu mánuði. Mörg flott útskot og yfir tíu 180 flugu í spjöld þetta kvöld. Vel gert keppendur og áfram svona.


Hér má smella á Stigalista Kópavogsdeildarinnar.


Næsta umferð fer fram miðvikudaginn 7. maí klukkan 19:30 en húsið opnar kl. 19:00.

Allir félagsmenn velkomnir að mæta, skráning er á abler.io

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page