Barnamót PFK og Pingpong.is
- pfk111
- Mar 19, 2024
- 1 min read
Barnamót PFK og Pingpong.is var haldið sunnudaginn 17.mars. Stúlknaflokkur var spilaður fyrir hádegi en drengirnir áttu sviðið eftir hádegi.

Þrjár stúlkur mættu til leiks; þær Elín Helga, Elín Dögg og Alexandra og spiluðu þær 301, beint inn - beint út, best af 2 í einum riðli, tvær umferðir. Með því fyrirkomulagi gátu leikir farið jafntefli en mjótt var á munum í flestum leikjum og ljóst að pílurnar voru vel brýndar hjá stúlkunum.
Svo fór að Elín Dögg hafði sigur en hún hefur æft vel upp á síðkastið og er að bæta sig hratt. Í öðru sæti var Alexandra og í þriðja sæti Elín Helga.
Í drengjaflokki mættu níu keppendur. Spilaðir voru tveir riðlar og útsláttur í kjölfarið. Drengirnir spiluðu 301, beint inn - tvöfaldur út, best af 3 alla leið. Margir hörkuleikir voru spilaðir og lítið gefið eftir.
Úrslit urðu þau að Bjarki vann Baltasar 2-1 í flottum úrslitaleik. Bjarki tók því 1. sætið að þessu sinni og Baltasar 2. sætið en báðir spiluðu þeir jafnt og gott mót þennan sunnudaginn.
Við þökkum Pingpong.is fyrir að gefa verðlaun í mótinu. Við þökkum einnig
Emmessís sem bauð svo öllum keppendum upp á ís að móti loknu 🍦 og Nói Siríus gaf súkkulaði í verðlaun 🍫 Barbarinn.is gaf stelpunum í klippinu 💇♀️ en allir strákarnir voru nýklipptir og flottir.
Næsta mót verður Kópavogsmeistaramót 301 Barna og verður það í apríl.





Comments