top of page

Lög félagsins

Samþykkt á aðalfundi 2023

 1.  grein

Félagið heitir Pílufélag Kópavogs, heimili félagsins og varnarþing er í Kópavogi. 

 2.  grein

Markmið félagsins er að iðka pílukast, glæða áhuga á pílukastíþróttinni og stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar hennar. 

 3.  grein

Félagsmenn geti allir orðið sem hafa áhuga á starfsemi félagsins og tilkynna aðild til stjórnar. 

 4.  grein

Árgjald félagsins skal ákveðið á aðalfundi félagsins ár hvert. Stjórn félagsins getur einnig ákveðið æfingargjöld. 

 5.  grein

Greiði félagsmaður ekki árgjald, ber að setja hann á skrá yfir óhlutgenga félaga, er ekki hafa leyfi til að keppa fyrir hönd félagsins, hafa ekki atkvæðisrétt á fundum þess og eru ekki kjörgengir í stjórn og nefndir. 

 6.  grein

Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir varamenn: Formaður, sem er kosin sérstaklega, varaformaður, gjaldkeri, tveir meðstjórnendur og tveir varamenn. Stjórnin skal kosin á aðalfundi ár hvert. Kosning skal vera skrifleg, komi fram ósk þess efnis. Ennfremur skal kjósa skoðunarmann reikninga.

 7.  grein

Stjórninni ber að gæta hagsmuna félagsins í öllum greinum. Hún hefur umráð yfir eignum og boðar til funda. Stjórnin getur enga fullnaðarákvörðun tekið nema meirihluti stjórnarmenn séu henni fylgjandi. Stjórnin getur vikið mönnum úr félaginu álíti hún framkomu þeirra í félaginu til vansa. Þó getur viðkomandi óskað þess að málið verði tekið fyrir á félagsfundi. 

 8.  grein

Reikningar félagsins miðast við áramót. 

 9.  grein

Aðalfund skal halda ár hvert, eigi síðar enn 30.apríl, og félagsfundi svo oft sem stjórnin ákveður eða skrifleg ósk kemur eigi færri enn 10 félagsmönnum. Til aðalfundar skal boða með minnst sjö daga fyrirvara er hann lögmætur sé löglega til hans boðað, án tillits til þess hversu margir mæta. Á aðalfundi eða félagsfundum skal kjósa sérstakan fundarstjóra. Á aðalfundi skulu mál tekin fyrir sem hér segir:
 

  1. Skýrsla stjórnar. 

  2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar. 

  3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði. 

  4. Ákvörðun árgjalds. 

  5. Lagðar fram tillhögur að breytingu laga og reglugerða félagsins, ef um er að ræða. 

  6. Kosning stjórnar, skoðunarmann reikninga, skv. 6.gr. laga félagsins. 

  7. Önnur mál. 

 
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum allra mál.

 10.  grein

Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins og skal í fundarboði geta þeirra breytinga sem bera á upp. Til þess að lagabreytingar nái fram að ganga þarf 2/3 greiddra athvæða.  

 11.  grein

Til að félagið verði lagt niður þarf samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi og skal þá stjórnin boða til aukaaðalfundar sem verður einnig að samþykkja tillöguna með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Verði félagið lagt niður skal afhenda eigur þess til UMSK til varðveislu, en ef hliðstætt félag verður stofnað innan bæjarins síðar skulu eignir þess afhentar hinu nýja félagi til afnota. 

AUGLÝSING

bottom of page