Birgitta sigrar krikketmót kvenna
Krikketmót var haldið fyrir eingöngu konur föstudaginn 25. september. Fjórar konur mættur til leiks og var spilað best af 3 í riðli. Mjög skemmtilegt mót og höfðu þær sem mættu mjög gaman af.
Birgitta kom sá og sigraði. Þrátt fyrir að vera að stíga sín fyrstu skref í pílukeppni sigraði hún alla sína leiki og spilaði vel. Í einum leiknum tók hún bull og 25 í tveimum pílum og lokaði leggnum og leiknum.
Helga Kjartans, Bryndís Birgis og Ásta Sigurjóns spiluðu líka mjög vel.
Til hamingju Birgitta 🎯💪🏻🏆
Næsta mót eingöngu fyrir konur verður þriðjudaginn 29. september kl. 18:30. Þá verður 301 mót eingöngu fyrir konur. Spilað 301 í riðlum og útslætti.
Allar velkomnar, kostar 1500 kr fyrir þær sem eru ekki í félaginu.
Hægt er að skoða næstu viðburði hjá PFK á pfk.is
Áfram PFK konur



Comments