top of page

Kári Vagn Kópameistari í 301 sido

  • pfk111
  • Jan 29
  • 2 min read

Skemmtilegt kvöld var í Digraneshöllinni fimmtudaginn 22. janúar.

16.leikmenn mættu til leiks og var dregið í fjóra riðla. Spilað var 301 beint inn og tvöfaldur út, best af 7 í riðlum, best af 9 í 16 manna og best af 11 eftir það. Mikið stuð og stemning var í salnum og hörkuleikir spilaðir.





Í A. riðli var mikil spenna um fyrsta sætið. En þar hafði Atli betur gegn Kára 4-3 og tók fyrsta sætið. Elvar í þriðja og Bragi í fjórða.


Í B. riðli tók Hrafn fyrsta sætið, hann tapaði ekki leik og Guðjón H tók annað sætið. Bjarki þriðja og Steinunn fjórða.



C. riðill var spennandi og voru hörku leikir spilaðir. Halli Eystins sigraði og Sævar varð í öðru. Ísak Máni í þriðja og Lárus í fjórða.



Í D. riðli vann Halli B alla og Siggi Þ tók annað sætið eftir baráttu við Gulla sem hirti það þrðja. Í fjórða varð Hlynur Nói.



Í 16. manna útslætti fór flest eftir bókinni. Í átta manna voru hörkuleikir og mikil spenna. Sævar gaf Halla B flottan leik og hefði með smá heppni getað unnið hann. Ísak Máni stríddi Atla, hinir tveir nokkuð öruggir. Undanúrslit voru frábær leikur á milli Halla Eysteins og Kára, þar munaði bara einni pílu oftast. Kári vann að lokum með flottum útskotum 6-4. Halli B spilaði af miklu öryggi gegn Atla og hafði hann þægilega 6-1.

Úrslitaleikurinn var í landliðsklassa, fáar pílur og margir leggir. Leikurinn fór í odda þar sem Halli fékk sénsinn en brást bogalistin og Kári nýtti tækifærið og lokaði leiknum.


Til hamingju Kári Vagn með sigurinn.


Við minnum á næstu mót og viðburði hjá okkur sem er að finna á Viðburðir PFK.


 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page