top of page

Elva Rut Kópavogsmeistari í 301 kvenna eftir ótrúlega spennandi úrslitaleik

13 hours ago
2 min read


Kópavogsmót kvenna í 301 fór fram fimmtudaginn 8. október 2026 í Íþróttahúsi Digraness.

Alls mættu 11 keppendur til leiks og var mikil spenna og góð stemning frá upphafi til enda.


Keppt var í tveimur riðlum þar sem Elva Rut stóð uppi sem sigurvegari A-riðils og Agnes tryggði sér efsta sætið í B-riðli. Að riðlakeppni lokinni tóku við átta manna úrslit með beinum útslætti.


 Átta manna úrslit

• Elva Rut – Sóldís 2–0

• Bryndís – Anna Björg 1–2

• Agnes – Díana 2–0

• Unnur – Elín 2–1  


Undanúrslit

• Elva Rut – Anna Björg 2–1

• Agnes – Unnur 2–1  


Ótrúleg spenna í úrslitaleiknum! Úrslitaleikurinn milli Elvu Rutar og Agnesar var sannkallaður spennutryllir þar sem báðar konur sýndu frábæra takta. Elva Rut byrjaði af krafti og komst í 1–0. Hún hélt áfram að spila vel og fékk nokkur tækifæri til að tryggja sér 2–0 sigur og þar með Kópavogsmeistaratitilinn. Agnes var hins vegar ekki á því að gefast upp! Hún sýndi mikla yfirvegun, tók út tvöfalda fimm og jafnaði leikinn í 1–1. Þar með var komið að oddalegg þar sem allt var undir! Báðar börðust þær af miklum krafti og spennan jókst með hverri umferð. Þær fengu báðar tækifæri til að klára leikinn en hvorug náði að hitta útskotið innan tíu umferða. Því þurfti að grípa til þess að kasta einni pílu í miðju (búlla) til að skera úr um sigurvegara mótsins! Og þar réðust úrslitin á aðeins TVEIMUR MILLIMETRUM!


Elva Rut átti kastið sem lenti nær miðjunni og tryggði sér þar með sigurinn og hinn eftirsótta titil Kópavogsmeistari í 301 kvenna árið 2026.  

Til hamingju, Elva Rut!


Pílufélag Kópavogs óskar Elvu Rut innilega til hamingju með glæsilegan sigur og Kópavogsmeistaratitilinn!

Einnig fær Agnes mikið hrós fyrir frábæra frammistöðu og eftirminnilegan úrslitaleik.


Við þökkum öllum 11 keppendunum fyrir þátttökuna og skemmtilegt mót. Líf og fjör hjá PFK! Það er nóg um að vera hjá Pílufélagi Kópavogs þessa dagana. Fjölbreytt mót, æfingar og námskeið eru í boði fyrir bæði byrjendur og lengra komna.


Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér dagskrána og næstu viðburði á heimasíðu félagsins:



Allir velkomnir!

 

ÁFRAM PFK!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page