Getraunanúmer PFK er 957
- pfk111
- Sep 5
- 2 min read

Í samráði við 1X2 hefur Pílufélag Kópavogs fengið getraunanúmerið 957. Við verðum með getraunakaffi á laugardögum milli klukkan 11:20-12:30 þar sem við hittumst í Digranesi, setjum saman seðil á 1X2 og köstum nokkrum pílum. Einnig verðum við með getraunahóp PFK 2020. Þar setjum við saman pening í hóp og tippum fyrir í hverri viku. Við erum í 10 vikna hópakeppni hjá Getraunum og getum unnið væna upphæð þar líka.
Hópurinn okkar heitir PFK 2020 og ef einhver gerir seðil heima hjá sér, á hann endilega að fara inná mínar síður og stilla á MITT FÉLAG inn hjá sér og þá styrkir hann okkur með því að velja styrktarnr. 957 Pílufélag Kópavogs. Ef einstaklingur gerir sjálfur miða í símanum eða í tölvu og merkir okkur, þá styrkir hann okkur um 10%. En ef hann kemur til okkar og gerir miðan hjá okkur eða er í hópakerfinu okkar, þá fáum við 26% af sölunni. Þannig að af 1000 kr fáum við 260 kr.

Við verðum með smá kerfi í Hópakerfinu okkar. Hægt er að kaupa hlut í hverri viku og skiftast þá vinningur jafnt á milli eftir hvað hver á mikið hlut í vinninginum. Einn hlutur kostar 500 kr, Þannig að ef Ási kaupir alltaf fyrir 1000 kr á hann tvo hluti í vinningnum. Ef Elvar kaupi alltaf 4 hluti fyrir 2000 þúsund og Sævar alltaf einn hlut fyrir 500 kr, á Elvar 4 hluti og Sævar hlut í vinningnum. Ef hverja viku fá menn borgað sinn hluta af vinning. Ef við myndum kaupa fyrir 3500kr, fær félagið 910kr fyrir þá viku og ef við myndum fá 100 þús í vinning, deilist það á einstaklinga eftir hversu mikið viðkomandi á í vinningnum.

Vinningur sem skiptist í 7 hluti,
þá fær hver sinn hlut af vinningnum.
Einn hlutur er þá 14.290kr af sigurvinning.
Ási fær 28.580kr
Sævar fær 14.290kr
Elvar fær 57.160kr
Samtals 100.000kr

Hér er hægt að sjá:
Getraunaseðil Helgarinnar
Við vonumst eftir að sjá þig á laugardögum í vetur.
Hvað er betra að taka æfingu og spila smá í getrunum?



Comments