top of page

Guðgeir, Daníel og Björn unnu sínar deildir í fyrstu umferð Shot deildarinnar

9 hours ago
2 min read


Frábært kvöld var í Digraneshöllinni fimmtudaginn 24. september þar sem fyrsta umferð var spiluð í SHOT deildinni. Mikil stemning var og mættu 17 keppendur til leiks. Þeim var raðað í þrjár deildir eftir getustigi.

Í efstu deild voru: Kári Vagn, Ási, Daníel, Sævar, Kolli og Kristinn. Í annari deild voru Guðgeir, Guðjón H, Bjarki, Ari, Ingi og Siggi Þ. Í þriðju deild voru Björn, Snæland, Elvar, Tómas og Jökull Þór.


Í efstu deild var hart barist. Ási vinnur alla í riðlinum og spilar mjög vel miðað við að hafa verið frá í 10-12 daga vegna meiðsla. Sævar tekur annað sætið með leggjahlutfalli yfir Daníel. Kolli tekur svo fjórða sætið.

Í undanúrslitum sigrar Ási 3-1 Kolla og Sævar tapar 0-3 geng Daníeli. Úrslitaleikur Ási og Daníel. Ási sigraði Daníel í riðlinum en Daníel ætlaði að bæta fyrir það, byrjaði vel og komst í 2-0 með 18 og 16 pílu leggjum. Ási gafst ekki upp og jafnaði 2-2 með 29 og 20 pílna leggjum. Oddaleggur og allt undir. Daníel byrjaði og allt var í járnum fram eftir legg en Daníel fékk fyrst séns að taka út en klikkaði. Ási var með 46 og fer í 10 og inn í 18 við vírinn og aftur inn í 9 við vírinn. Daníel brást þá ekki bogalistin og hann tók út D5, vann leikinn 3-2 og um leið mótið. Vel gert Daníel og til hamingju með sigurinn.



Önnur deild var mjög jöfn og var bara spilaður einn riðill. Guðgeir og Ingi voru jafnir með fjóra sigra en Guðgeir með betra leggjahlutfall og sigrar deildina. Til hamingju Guðgeir.



Þriðja deild voru Björn og Snæland með ákveðna yfirburði. Björn sigraði alla sína leiki og Snæland tapaði aðeins gegn Birni.

Til hamingju Björn.



Næsta umferð í SHOT deildinni verður fimmtudaginn 1. okt.

Allir velkomnir að keppa.

Kostar 1500 kr fyrir aðra en félagsmenn.

Hægt er að skoða viðburði PFK á pfk.is


Áfram PFK



 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page