Hlynur Nói vann unglingamót Pingpong.is & PFK
- pfk111
- Oct 31
- 1 min read

Unglingamót Pingpong.is & PFK var haldið laugardaginn 11. okt. Þrettán keppendur mættu til leiks og voru þeir dregnir í tvo riðla og svo var farið í 8 manna útslátt.
Eftir langan dag var komið af úrslitaleik. Hlynur Nói gegn Ísaki Mána; tveir gríðarlega efnilegir. Mikið jafnræði var í leiknum og vann Hlynur í oddalegg 2-1. Í 3-4 sæti voru Tómas Orri og Adrían Breki.
Til hamingju með sigurinn Hlynur Nói.
Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Næsta mót verður 1. nóv kl: 13:00.
Öll velkomin að mæta.



Comments