top of page

Kolli vinnur Atla Þór í úrslitum í 501 móti

1 hour ago
1 min read

Fimmtudaginn 17. september var haldið 501 mót í Digranesi. Tíu keppendur mættu til leiks og var spilað var best af 5 alla leið. Dregið var í tvo riðla og komust fjórir áfram í 8 manna útslátt úr hvorum riðlinum.

Frábær stemning var í Digraneshöllinni og nokkrir leikmenn að koma inn eftir gott sumarfrí.


Í riðli A var Kollbeinn aðal kallinn og sigraði alla. Hann er að spila eins meistari.

Annar varð Elís, en hann er koma heitur inn eftir gott sumar á austurlandi.


Í B riðli var það markakóngurinn úr boltanum, hann Atli Þór sem sigraði alla þrjú núll og tók fyrsta sætið. Í öðru sæti varð Formaðurinn hann Sævar, hann er að spila vel þessa dagana.


Þá er það útslátturinn. Kolli tekur bara alla og jarðar þá. Ekkert mál fyrir Kolla sem spilar flesta leikina yfir 60 avg og úrslitaleikinn á 68 avg. Vel gert Kolli og til hamingju með sigurinn.

Kolli hefur verið að taka mikum framförum í sumar og kemur vel tilbúinn inn í haustið.

Atli Þór hefur líka greinilega verið að kasta vel í sumar en hann tók sex sinnum 180 um kvöldið og spilaði flesta leikina sína yfir 70 avg. Frábær framistaða og frábærir leikmenn.


Næstu mót má sjá á heimasíðu Pílufélags Kópavogs:

Allir velkomnir í Digranes!

Áfram PFK!🎯




 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page