top of page

Kolli vinnur Scoliamót

19 hours ago
1 min read

Fimmtudaginn 3. september var spilað Scoliamót best af 9, beinn útsláttur. Þá þarf að sigra 5 leggi til að vinna leikinn. Tíu leikmenn mættu til leiks og voru hörku leikir spilaðir.


Í undanúrslitum spiluðu:

Kristinn 0-5 Ási. Kristinn átti ekkert svar við frábæri spilamensku hjá Ása sem spilaði leggina á 77,5 avg (leggir á 23-17-23-16–18 pílur)🎯💪🏻👏🏻👏🏻


Í hinum leiknum spiluðu:

Kollbeinn Gestur 5-3 Björn Magnús. Mjög jafn leikur en Kolli var sterkur á tvöföldu reitunum og vann góðan sigur. Bestu leggirnir hjá Kolla vor 19 og 24 pílur og Kolli að spila á 53,4 avg.



Úrslitaleikur:


Úrslitaleikurinn var ansi góður. Ási vann fyrsta legg á 26 pílum og kemst yfir 1-0. Þá vann Kolli næstu fjóra og kemst í 1-4. Hann tekur 20, 26, 25 og 24 pílna leggi á meðan Ási hitti ekki útskotin sín. Ási gafst ekki upp og vann næstu þrjá leggi á 25, 21 og 21 pílu. Kolli fékk séns að vinna leikinn í einum af þessum leggjum, en klikkaði.

Oddaleikur og staðan er 4-4. Kolli byrjaði oddalegginn og lágu skori og Ási náði góðri forystu en í sjöttu umferð tók Kolli 140 og allt í járnum. Ási tók þá 81 og stillti upp fyrir D20 í sjöundu umferð. Kolli tók 26 og skildi sig eftir í 45. Ása bregst þá bogalistin og Kolli nýtir tækifærið og tekur út 45, legginn á 27 pílum og vinnur 5-4.


Ási 4-5 Kolbeinn Gestur

Frábær leikur.


Til hamingju Kolli


Highlights



Næstu mót má sjá á heimasíðu Pílufélags Kópavogs: www.pfk.is/vidburdir 

Allir velkomnir í Digranes!

Áfram PFK!🎯




 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page