Kolli vinnur Scoliamót

Þriðjudaginn 29. september var keppt í 501 Scoliamóti í beinum útslætti, best af 7 leggjum.
Alls mættu 11 keppendur til leiks og var frábær stemning í Digraneshöllinni.
Kolli hóf mótið af krafti og sigraði Stefán Örn 4–0 í fyrstu umferð. Næstur beið Kristinn og úr varð hörkuleikur þar sem Kolli hafði betur 4–3. Í undanúrslitum mætti Kolli Guðjóni H og tryggði sér sæti í úrslitum með 4–2 sigri.
Í úrslitaleiknum mættust Kolli og Ási og þar var boðið upp á háspennu. Þeir skiptust á að vinna leggi og Ási komst yfir, 3–2. Kolli lét það þó ekki slá sig út af laginu, vann næstu tvo leggi og tryggði sér glæsilegan 4–3 sigur.
Til hamingju með sigurinn Kolli!
Helstu afrek úr mótinu.
Nóg er um að vera í Digranesi í vikunni og fjölbreytt dagskrá fram undan.
Allir velkomnir!




Comments