Kári safnar sigrum
- pfk111
- 14 hours ago
- 1 min read

Fjórða umferð af átta var spiluð fimmtudaginn 5. feb. 19. leikmenn mættu til leiks og var skipt niður í þrjár deildir. Spilað var 501 best af 5 alla leið. Í öllum deildum voru svo spiluð undanúrslit og úrslitaleikur.
Frábærir leikir og fullt af tonnum og tonnum 80. Ási átti besta legginn en hann spilaði á 15 pílum. Ísak Máni átti hæsta útskotið 130 út. Kári átti besta leik á 80 avg. Kári spilaði nokkuð vel allt mótið og tapaði ekki leik.
Til hamingju Kári Vagn.
Kári spilar vel og vinnur deildina, hann fær samt nokkra hörku leiki þar sem hann þarf að taka á öllu sem hann á. Sævar lendir í öðru eftir mjög jafnan úrslitaleik gegn Kára.

Frábæri leikir hér. Kolli spilar vel og vinnur deildina. Pabbi hans Guðgeir gerir það líka og lendir í öðru sæti.

Kristinn spilar vel og tapar aðeins einum leik. Guðjón H fer upp með honum.

Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 12. febrúar.
Húsið opnar kl: 19:00 og mótið byrjar kl:19:30.



Comments