top of page

Kári Vagn er Kópavogsmeistari 2025

  • pfk111
  • Apr 5
  • 2 min read



Kópavogsmeistaramótið í 501 einmenningi var haldið í Íþróttahúsinu Digranesi fimmtudaginn 3. apríl 2025. 24 keppendur mættu á staðinn og freistuðu þess að landa Kópavogsmeistaratitlinum. Spilað var í fjórum riðlum og svo var farið í 16 manna útslátt. Mikil keppni og stemning var á staðnum og ljóst að mikið var undir. Það voru mörg útskot yfir 100 tekin og fjöldinn allur af 180 flaug í spjaldið þetta kvöld.






Úrslit riðla:



Útskotin voru ekki að hitta hjá Kristjáni Sig í riðlinum en hinn 15 ára gamli Kolbeinn var í miklu stuði og vann alla sína leiki í riðlinum. Öflugir Marco og Bjarki fylgja þeim Kolbeini og Kristjáni upp úr riðli. Vel gert Kolli!



Í B riðli var hörð barátta milli þeirra Ása og Kára um hvor þeirra tæki fyrsta sætið. Báðir spiluðu vel en Ási marði riðilinn á leggjamun. Pétur og Hrafn fylgja þeim upp.



Halli Birgis var í litlum vandræðum í þessum riðli. Hann tapaði aðeins einum legg en með honum upp fara Gulli, Nökkvi og Ísak.



Mikil keppni var í D riðli sem stóð undir nafni sem dauðariðillinn. Flestir leikir voru spilaðir á 60+ avg en svo fór að Þórir vann riðilinn á einum legg fram yfir Helga Frey. Bjarni og Sævar fylgja þeim í útslátt en 180 vélin Elís og hinn ungi og efnilegi Birkir sitja eftir með sárt ennið.



Útsláttur:


Kárir Vagn og Halli B spiluðu langbest í útslættinum. Halli hafði tekið þrjá leiki yfir 85 avg í mótinu fyrir útslitaleikinn og var sjóðandi. Kári vann sína leiki á 60-70 avg.

Úrslitaleikurinn einkendist af því að Halli B gat bara ekki tekið út þrátt fyrir að fá fjölda pílna til þess. Kári Vagn sýndi enn og aftur stáltaugar og sigraði sanngjarnt 5-0 og varð Kópavogsmeistari 2025.


Kári er orðinn einn af okkar bestu leikmönnum þrátt fyrir ungan aldur en hann er á fjórtánda ári, nýfermdur drengurinn. Til hamingju Kári Vagn 🏆🎉


Hér er mynd af efstu mönnum. Kári Vagn sigurvegari. Halli B í öðru sæti. Þórir og Bjarni tóku 3.-4. sætið.


 

Við þökkum öllum 24 leikmönnunum sem tóku þátt og við þökkum Pingpong.is fyrir stuðninginn á árinu.


Við viljum minna á að skráning er hafin í Kópavogsdeildina sem byrjar 16. apríl.

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page