Kári Vagn Kópavogsmeistari í Grand Prix
Föstudaginn 9. október var keppt í Kópavogsmóti í Grand Prix í Digraneshöllinni. Ellefu leikmenn mættu til leiks og var dregið í 16 manna úrslit. Spilað var beinn útsláttur, best af 7 leggjum.
Mjög skemmtilegt fyrirkomulag og myndaðist mikil spenna í öllum leikjum.
16 manna úrslit
Hér var mikil spenna í öllum leikjum.
Bjössi - Guðgeir 2 - 4, mjög jafn leikur hjá þeim, fór úr 2-2 í að Guðgeir gaf í og sigraði næstu tvo leggi og leikinn.
Kári - Kolli 3-4. Frábær leikur. Kolli fékk eina pílu til slá Kára út en klikkaði. Kári gaf honum ekki annan séns og sigraði.
Arnar - Bragi 3 - 4. Hinn 11 àra Arnar náði að fara alla leið í oddalegga gegn Braga en reynsla Braga skilaði sér og sigurinn var hans.
8 manna úrslit
Ási - Guðgeir 0-4. Ási gaf leikinn, þurfti frá að hverfa og Guðgeir áfram.
Sævar - Daníel 4-1 Sævar heitur á tvöföldum og skoraði vel.
Siggi - Kári Vagn 2-4 Kári komst í 3-0 en hann Siggi var ekki hættur og minnkaði muninn í 3-2 en þá kláraði Kári leikinn.
Jökull - Bragi 2-4. Þetta var mjög jafn leikur en Bragi tók síðustu tvo leggina og sigurinn.
Undanùrslit
Sævar og Kári sigra báðir sína leiki 4-0. Þeir eru að spila vel.
Í 3.-4. sæti urðu Guðgeir og Bragi 🥉🥉
Úrslitaleikur
Magnaður úrslitaleikur milli Sævars og Kára.
Kári vinnur endurtekið búll og hefur leik en Sævar byrjar betur og kemst í 2-0 með 26 og 20 pílna leggjum. Kári fer þá í gang, er að kasta vel og vinnur næstu þrjá leggi og breytir stöðunni í 3-2 með leggjum upp á 22-32-21 pílu auk þess að sýna kraft sinn með 180 í fimmta leggnum. Sævar er upp við vegg og verður að vinna til að halda leiknum gangandi. Hann hendir í 180 og tekur sjötta legginn örugglega með 21 pílu.
Staðan er 3-3 og spennan í hámarki
Kári byrjar oddalegginn. Hann klikkar á að hitta tvöfaldan reit og fær engin stig. Sævar fer inn í fyrsta og skorar 89 stig. Aftur klikkar Kári og Sævar skorar örugga 60 og er kominn 149 stigum neðar en Kári. Þriðja umferð og Kári hittir loksins tvöfaldan og skorar 112 stig, kemur sér inn í leikinn aftur. Sævar skorar 60 en þá tekur Kári 140 og jafnar þar með leikinn. Sævar er ekki hættur og skorar 100. Kári byrjar fimmtu umferð og spennan að magnast. Kári skorar 81 en skilur sig eftir í 168 sem er ekki útskot. Sævar skorar næst 85 og er kominn í sæmilegt útskot 107. Kári skorar aðeins 45 og skilur sig eftir í háu útskoti 123. Sævar hefur góðan séns til að vinna leikinn með 107 eftir en hann gerir 49 og skilur 58 eftir. Sjöunda umferð og Kári með 123 og Sævar 58. Kári gerir og skorar 79 stig og skilur eftir 44. Sævar með þrjár pílur í hendi en bregst algjörlega bogalistin og fær ekki eina pílu í tvöfaldan þar sem hann hitti ekki einfalda reiti. Kári er með 44 eftir, setur fyrstu í 12 og er kominn í útskot. Önnur pílan fer í einfaldan 16 en hann klikkar ekki tvisvar á útskoti og smyr síðustu pílunni beint í tvöfaldan 8 og klárar legginn á 24 pílum.
Til hamingju Kári 🎉
Hér eru tölfræði úr mótinu.
Nóg er um að vera í Digranesi í vikunni og fjölbreytt dagskrá framundan.
Allir velkomnir!
Áfram PFK



Comments