Ungir leikmenn á hraðri uppleið!
- pfk111
- Mar 18, 2024
- 2 min read
Áttunda umferð Pingpong.is mótaraðarinnar fór fram fimmtudaginn 14. mars í húsakynnum PFK í Digranesi. Um er að ræða tíu vikna mótaröð þar sem sex bestu kvöld keppenda gilda til stiga. Stigameistari mótaraðarinnar hlýtur vegleg verðlaun frá Pingpong.is.
Alls voru 10 keppendur mættir til leiks og margir sterkir leikmenn sem freistuðu gæfunnar. Spilað var í tveimum riðlum, best af 5 alla leið og komust fjórir leikmenn upp úr hverjum riðli.
Í A-riðli voru Tómas, Halli Eysteins, Kári Vagn, Þórir og Ragnar Karl. Halli Eysteins kom eins og elding inn og vann alla leikmenn og þá riðilinn líka. Tómas tók annað sætið, Kári það þriðja og Þórir það fjórða.
Í B-riðli voru Helgi Freyr, Einar Ágúst, Bjarki, Ási og Atli Þór. Hörku leikir voru í B-riðli og þurfti að skoða leggja hlutfall til að skera um hverjir væru í sætum 1-3. Atli Þór sem er mjög efnilegur leikmaður vann alla leikina sína leiki nema gegn Ása og fékk fyrsta sætið, Ási tók annað sætið, Helgi Freyr þriðja og Einar Ágúst það fjórða.
Í 8 manna útslætti voru hörku leikir. Úrslitin voru eftirfarandi.
Kári Vagn 3-2 Ási
Einar 0-3 Halli Eysteins
Atli Þór 3-0 Þórir
Helgi 1-3 Tómas
Undanúrslit:
Halli Eysteins 3-0 Kári Vagn
Atli Þór 3-0 Tómas
Úrslit urðu þau að Halli Eysteins vann Atla Þór 3-0. Þessi leikur var mjög jafn en Halli tók alltaf út. Þessa má geta að þessir tveir 17 ára strákar eru mjög efnilegir og gætu náð langt með góðum æfingum. Báðir köstuðu vel á sínu fyrsta móti. Haraldur Björgvin Eysteinsson vann því 8. umferðina í Pingpong.is mótaröðinni.
Næsta umferð Pingpong.is mótaraðarinnar verður spiluð fimmtudaginn 4. apríl. ATH að næstu tveir fimmtudagar falla út, vegna lokunar á salnum okkar í Digranesi. Mótaröðin er opið öllum, þátttökugjald er ekkert fyrir skráða félagsmenn en 1.000 kr á kvöldi fyrir aðra.
Hér er fyrir neðan er hægt að sjá stigatöfluna með því að smella á linkinn. Ási Harðar leiðir Pingpong.is mótaröðina þegar tvær umferðir eru eftir.





Comments