top of page

Sandra Guðlaugs sigraði kvennamót í 501

May 29
1 min read

Miðvikudaginn 27. maí var haldið skemmtilegt 501 pílumót eingöngu fyrir konur hjá Pílufélagi Kópavogs. Alls mættu 12 konur til leiks og var stemningin afar góð frá upphafi til enda.


Spilað var í þremur riðlum áður en keppt var í 8 manna útslætti ásamt forsetabikarnum. Keppnin var jöfn og spennandi og konurnar sýndu flotta takta.





Sandra, Steinunn og Harpa sigruðu sína riðla.


Sylvía stóð uppi sem sigurvegari forsetabikarsins eftir glæsilega frammistöðu.






Í aðalkeppninni sigraði Sandra Guðlaugsdóttir Ástu Sigurjóns 2-0 í spennandi úrslitaleik.

Í 3.–4. sæti enduðu þær Ragna Björg og Aldís.



Pílufélag Kópavogs þakkar öllum þátttakendum fyrir frábæra keppni, góðan félagsskap og skemmtilega stemningu. Svo er næsta mót er rétt handan við hornið!


Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page