top of page

Steinunn sigraði 301 kvennamót

13 hours ago
1 min read


301 kvennamót PFK fór fram í Digranesi þriðjudaginn 29. september.

Sjö konur mættu til leiks auk mótsstjórans Elvars, sem fékk að slást í hópinn sem áttundi keppandinn.

Byrjað var á riðlakeppni þar sem keppendum var skipt í tvo fjögurra manna riðla.





 Í A-riðli léku Helga, Sól­dís, Berglind og Elvar og var keppnin mjög jöfn.








 Í B-riðli voru Steinunn, Harpa, Birgitta og Bryndís, en þar hafði Steinunn nokkra yfirburði. 








Að riðlakeppninni lokinni var leikið um sæti.

Mæðgurnar Harpa og Berglind mættust í hörkuleik um 6. sætið þar sem Harpa hafði betur, 2–1.

Hin efnilega 13 ára Sól­dís mætti Birgittu í leik um 4. sætið og þar hafði Birgitta betur.

Helga K og Bryndís áttust síðan við um 2. sætið. Bryndís lék vel og tryggði sér sigur, 2–0, og þar með 2. sætið.


Í hálfgerðum úrslitaleik mættust Elvar mótsstjóri og Steinunn. Þrátt fyrir að Elvar hafi sýnt góða takta var hann kolólöglegur í mótið og er Steinunn sigurvegari mótsins. Vel gert Steinunn 🎉


1. sæti – Steinunn

2. sæti – Bryndís 

3. sæti – Helga K


Enn eitt skemmtilegt mót að baki í Digranesi, þar sem góð stemning og skemmtilegir leikir voru í fyrirrúmi.

Nóg er um að vera í Digranesi þessa vikuna og allir velkomnir!





 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page