Styrktarmót Kára Vagns sló í gegn
- 3 days ago
- 2 min read

Fimmtudaginn 4. júní fór fram glæsilegt styrktarmót Kára Vagns þar sem alls mættu 18 keppendur til leiks. Það var afar góður andi í Digranesinu þetta kvöldið og hart barist frá fyrstu umferðar til þeirrar síðustu.
Keppendur hófu leik í fjórum riðlum áður en tekið var til við spennandi 16 manna útsláttarkeppni. Þar fóru fram margir æsispennandi leikir og oft munaði mjóu á milli keppenda.
Í átta manna úrslitum vakti athygli sigur Kristjáns gegn Kára Vagni þar sem Kristján hafði betur, 3-0 með frábærum leik með yfir 90 í meðaltal.
Undanúrslitin buðu svo upp á mikla dramatík. Sævar tryggði sér sæti í úrslitum með góðum sigri á Inga, 3-2, í jöfnum og spennandi leik. Í hinum undanúrslitaleiknum hafði Marel betur gegn Kristjáni, einnig 3-2, eftir sannkallaðan naglbít þar sem báðir leikmenn fengum pílur til að koma sér í úrslitaleikinn.

Í úrslitaleiknum mættust síðan Marel og Sævar í frábærum leik sem hélt áhorfendum á tánum allt til loka. Þar hafði Sævar að lokum betur, 3-2, eftir spennandi oddalegg og stóð því uppi sem sigurvegari mótsins.
Sævar er heldur betur að spila vel um þessar mundir, en þetta er þriðja mótið sem hann vinnur á árinu. Hann sigraði 4. umferð Bullsdeildarinnar í febrúar, varð meistari í 301 DIDO tvímenningi ásamt Atla í maí, varð svo í 2. sæti í síðasta Floridanamóti þar sem hann vann sig upp í Silfurdeild og nú bætti hann svo við sigri á öflugu styrktarmóti Kára Vagns.
Allt kvöldið einkenndist af hörkuleikjum, frábærri stemningu og góðum félagsskap. Keppendur og gestir voru sammála um að mótið hefði tekist einstaklega vel og þá voru glæsilegir vinningar einnig í boði fyrir þátttakendur.
Vel gert Sævar og áfram Kári Vagn í komandi landsliðsverkefni!



Comments