top of page

Unglingamót PFK og Pingpong.is



Það var unglingamót PFK og Pingpong.is miðvikudagskvöld 17 apríl. 7 einstaklingar mættu til leiks, þeir eru: Kári Vagn, Þorbjörn Óðinn, Haraldur Björgvin, Jóhann Fróði, Óðinn Logi, Frosti Steinn og Anton Freyr.


Spilaður var einn riðill best af 5 og sigurvegarinn vann mótið.


Sigurvegari kvöldsins var Haraldur Björgvin Eysteinsson. Haraldur átti frábært kvöld og vann alla sína leiki. Kári lenti í öðru sæti eftir að hafa fengið tækifæri til að vinna Harald í oddalegg en pílurnar hittu ekki í þetta skiptið.


Gaman er að segja frá því að Haraldur er að byrja vel hjá okkur. Í kvöld spilaði hann 6 leiki og var með 62,44 avg á mótinu. Haraldur tók einn leik yfir 70 í avg, hann spilaði 16 pílna legg og hæsta útskot hans var 119. Halli er öflugur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér í pílukasti.


Næsta unglingamót verður miðvikudaginn 24. apríl kl 19:30.

0 comments

AUGLÝSING

bottom of page