Unglingamótaröð Pingpong.is og PFK - úrslit 1. umferðar
- pfk111
- Jan 21, 2024
- 1 min read

Fyrsta umferð Unglingamótaraðar Pingpong.is og PFK fór fram föstudaginn 19. janúar. Mótaröðin er spiluð annan hvern föstudag í aðstöðu PFK í Digranesi og telur alls fimm skipti þar sem fjórar bestu umferðir telja til stiga. Pingpong.is veitir verðlaun stigameistara að mótaröð lokinni.
Átta unglingar mættu til leiks í 1. umferð og var spilað í tveimur riðlum með útslætti í kjölfar riðla. Úrslit í 8 manna úrslitum voru eftirfarandi:
Jóhann Fróði 3 - 0 Óðinn Logi
Þorbjörn Óðinn 3 - 1 Snæbjartur Sölvi
Kári Vagn 3 - 0 Anton Freyr
Marel Haukur 3 - 1 Óskar Páll
Tveir hörkuleikir voru svo spilaðir í undanúrslitum þar sem úrslit voru svohljóðandi:
Jóhann Fróði 3 - 2 Þorbjörn Óðinn
Kári Vagn 3 - 2 Marel Haukur
Leikið var um bæði gull og brons í mótinu og fór það svo:
Leikur um 1. sæti: Jóhann Fróði 3 - 1 Kári Vagn
Leikur um 3. sæti: Marel Haukur 3 - 1 Þorbjörn Óðinn
Jóhann Fróði er sigurvegari fyrstu umferðar Unglingamótaraðar Pingpong.is og PFK, Kári Vagn tekur annað sætið og Marel Haukur það þriðja.



Comments