Ísak Máni sigraði unglingamótaröð Pingpong.is & PFK
- Dec 19, 2025
- 1 min read

Unglingamót Pingpong.is & PFK var haldið laugardaginn 6. desember. Níu keppendur mættu til leiks og var skipt í tvo riðla. Spilað var 501 best af þremur í riðlinum en í undanúrslitum og úrslitaleik var spilað best af fimm. Einnig var svo spilaður úrslitaleikur í barnaflokki best af þremur í 501, beint inn og beint út.
Mikil stemning var og skemmtileg keppni.

Ísak spilar vel og vinnur alla sína leiki án þess að tapa legg. Ari í öðru og Jökull í þriðja. Bjarki tekur fjórða og vinnur Kristinn í barnaflokknum.

Hlynur vinnur sína leiki og tekur fyrsta sætið. Tómas í öðru og Adrían í þriðja. Jökull Hrafn í fjórða í sínu fyrsta móti.

Hörkuleikir í útslættinum. Ísak er á eldi og tapar ekki leik og vinnur 6. og síðustu umferð í Pingpong.is mótaröðinni. Ari spilar vel og vinnur Hlyn 3-2 í jöfnum leik. Ari tekur silfrið og Tómas og Hlynur fá brons fyrir 3.-4. sæti.
Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Hér er stigataflan úr unglingamótarðinni Pingpong.is & PFK.
Við minnum á næstu mót og viðburði hjá okkur sem er að finna á Viðburðir PFK.



Comments