top of page

Ísak Máni vann unglingamót Pingpong.is & PFK

  • pfk111
  • Nov 15
  • 1 min read

Bjarki og Ísak Máni
Bjarki og Ísak Máni

Unglingamót Pingpong.is & PFK var haldið laugardaginn 1. nóvember. Ellefu keppendur mættu til leiks og voru þeir dregnir í tvo riðla og svo var farið í 8 manna útslátt.

Eftir frábæran dag var komið að úrslitaleik. Hlynur Nói gegn Ísaki Mána; tveir gríðarlega efnilegir. Frábær úrslitaleikur, þar sem Ísak Máni sýndi frábæra takta og vann 3-0. Ísak spilaði á 57 avg og átti frábæra leggi. Í 3.-4. sæti voru þeir Reynir og Ari.

Einnig spiluðu Bjarki og Alexander um sigurinn í barnaflokki og Bjarki sigraði 2-0

Til hamingju með sigurinn Ísak Máni og Bjarki.



Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.

Tvær umferðir eru núna eftir og hér er hægt að smella á stigatöfluna til að sjá stöðuna.


Næsta mót verður 22. nóv kl: 13:00.

Öll velkomin að mæta.

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page