Úrslit 2. umferðar unglingamótaraðar Pingpong.is og PFK
- pfk111
- Feb 7, 2024
- 1 min read

Önnur umferð unglingamótaraðar Pingpong.is og PFK fór fram föstudaginn 2 febrúar. Mótaröðin er spiluð annan hvern föstudag í aðstöðu PFK í Digranesi og verður alls fimm sinnum þar sem fjórar bestu umferðir telja til stiga. Pingpong.is veitir verðlaun stigameistara að mótaröð lokinni.
Þrettán unglingar mættu til leiks í 2. umferð og var spilað í tveimur riðlum með útslætti í kjölfar riðla. Frábærir leikir voru í riðlunum og nokkuð um ný andlit voru í mótinu. Kári Vagn og Óskar Páll unnu alla sýna leiki í riðlinum.
Úrslit í 8 manna úrslitum voru eftirfarandi:
Óskar Páll 3-1 Nadía Ósk
Jóhann Fróði 3-1 Pétur G
Þorbjörn Óðinn 1-3 Marel Haukur
Kári Vagn 3-1 Mikiael Máni
Tveir hörkuleikir voru svo spilaðir í undanúrslitum þar sem úrslit voru svohljóðandi:
Jóhann Fróði 3-0 Óskar Páll
Marel Haukur 2-3 Kári Vagn
Leikið var um bæði gull og brons í mótinu og fór það svo:
Leikur um 1. sæti: Jóhann Fróði 3 - 1 Kári Vagn
Leikur um 3. sæti: Óskar Páll 3 - 1 Marel Haukur
Jóhann Fróði er sigurvegari aðra umferðina í röð í Unglingamótaröð Pingpong.is og PFK, Kári Vagn tekur annað sætið og Óskar Páll það þriðja.
Þriðja umferð Unglingamótaröðinar frestast um viku og verður næst 23. febrúar.



Comments