Þorbjörn Óðinn tók gullið í fjórðu umferð í unglingamótaröð Pingpong.is og PFK
- pfk111
- Mar 4, 2024
- 1 min read

Fjórða umferð unglingamótaraðar Pingpong.is og PFK fór fram föstudaginn 1. mars. Mótaröðin er spiluð annan hvern föstudag í aðstöðu PFK í Digranesi og verður alls sex sinnum þar sem fjórar bestu umferðir telja til stiga. Pingpong.is veitir verðlaun stigameistara að mótaröð lokinni.
Þrettán unglingar mættu til leiks í 4. umferð og var spilað í riðlum með útslætti í kjölfar riðla. Frábærir leikir voru í riðlunum og var gaman að fylgjast með framförum þessara efnilegu leikmanna.
Úrslit í 16 manna úrslitum voru eftirfarnadi:
Óðinn 0-3 Þorbjörn
Árni 0-3 Marel
Axel 3-1 Robert
Frosti 3-1 Pétur
Jóhann 3-1 Reynir
Úrslit í 8 manna úrslitum voru eftirfarandi:
Þorbjörn 3-1 Frosti steinn
Sigurður 3-1 Axel Orri
Kári 3-1 Marel
Anton 3-0 Jóhann Fróði
Tveir hörkuleikir voru svo spilaðir í undanúrslitum þar sem úrslit voru svo hljóðandi:
Þorbjörn 3-1 Sigurður
Anton 3-2 Kári
Þorbjörn Óðinn vann Anton Hallgrímsson 3-1 í úrslitaleiknum. Frábært úrslitaleikur og hafa þessir tveir tekið miklum framförum síðustu mánuði. Þorbjörn Óðinn er sigurvegari fjórðu umferð í unglingamótaröð Pingpong.is og PFK. Anton tekur annað sætið og Sigurður það þriðja.
Fimmta umferð Unglingamótaraðarinnar verður föstudaginn 15 mars.



Comments