Þórarinn Skúli sigraði seinna stigamót unglinga PFK
6 hours ago
1 min read
Laugardaginn 26. september var haldið stigamót fyrir börn og unglinga. Það er gert til að velja lið fyrir Íslandsmót félagsliða sem fer fram í byrjun október. 12 krakkar mættu og skemmtu sér allir vel. Spilað var í riðlum og útslætti best af þremur alla leið.
Þórarinn Skúli spilaði best og tapaði aðeins einum leik í riðlunum. Hann spilaði við Ara Björn í úrslitum og sigraði hann 2-0 í vel spiluðum leik hjá Þórarni. Hann spilaði frábærlega allt mótið og tók 180 í úrslitaleikum og var með 60 avg í þeim leik.
Íslandsmót félagsliða ungmenna verður næstu helgi 3.-4. október.
Nú liggja þjálfararnir undir feld með að velja átta drengi og fjórar stúlkur í liðið.
Áfram PFK



Comments