Anna Björg Kópavogsmeistari í krikket kvenna 2026! 🏆

Fimmtudaginn 12. nóvember fór fram Kópavogsmót í krikket kvenna hjá Pílufélagi Kópavogs í Íþróttahúsinu Digranesi. Átta konur mættu til leiks og var keppendum skipt í tvo fjögurra manna riðla áður en haldið var í útsláttarkeppni.
A-riðill – Elín Dögg ósigruð
Í A-riðli sýndi hin unga og efnilega Elín Dögg, Íslandsmeistari í flokki 13 ára og yngri, frábæra takta. Hún sigraði alla sína leiki án þess að tapa einum einasta legg.
Í öðru sæti varð reynsluboltinn Birgitta Lára, en ríkjandi Kópavogsmeistari í 301 kvenna, Elva Rut, hafnaði í þriðja sæti. Ásta varð síðan í fjórða sæti.
B-riðill – Anna Björg með fullt hús
Í B-riðli var það Anna Björg sem réð ríkjum. Hún sigraði alla sína leiki án þess að tapa legg og tryggði sér efsta sætið með glæsilegri frammistöðu.
Unnur hafnaði í öðru sæti en í því þriðja varð Katla. Katla er móðir Elínar Daggar og virtist hún hitta Bull eftir pöntun en það voru örugglega hátt í 50 Bull sem hún tók á mótinu!
Díana hafnaði síðan í fjórða sæti riðilsins.
Áttamannaúrslit – Hörkukeppni
Eftir riðlakeppnina tók við átta manna útsláttarkeppni þar sem allir keppendur áttu möguleika á að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Elín Dögg sigraði Díönu 2–0.
Elva sigraði Unni 2–1.
Anna Björg sigraði Ástu 2–0.
Birgitta Lára sigraði Kötlu 2–0.
Undanúrslit – Elva og Anna Björg áfram
Í undanúrslitum mættust Elva Rut og Elín Dögg. Elva Rut sýndi styrk sinn og reynslu og hafði betur 2–0 gegn Íslandsmeistaranum unga.
Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Anna Björg og Birgitta Lára. Þar hélt Anna Björg áfram sinni frábæru spilamennsku og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með 2–0 sigri.
Úrslitaleikur – Anna Björg Kópavogsmeistari!
Til úrslita léku því Elva Rut, ríkjandi Kópavogsmeistari í 301 kvenna, og Anna Björg, sem hafði ekki tapað einum einasta legg í mótinu fram að úrslitaleiknum.
Úrslitaleikurinn var frábær skemmtun og mikil spenna allt til enda. Báðar konurnar sýndu flotta takta og þurfti oddalegg til að knýja fram úrslit.
Að lokum var það Anna Björg sem hafði betur 2–1 og tryggði sér þar með titilinn Kópavogsmeistari í krikket kvenna 2026!
Anna Björg átti sannkallað stórmót, vann alla sína leiki og tapaði aðeins einum legg allt kvöldið.
Lokastaða mótsins 🏆
🥇 1. sæti – Anna Björg
🥈 2. sæti – Elva Rut
🥉 3.–4. sæti – Elín Dögg og Birgitta Lára
Frábært kvöld í Digranesi þar sem gleði, keppnisskap og góð stemning voru í fyrirrúmi. Sérstaklega gaman er að sjá ólíkar kynslóðir mætast við píluspjaldið og sýna hvað kvennapílan er orðin öflug hjá Pílufélagi Kópavogs.
Til hamingju Anna Björg með Kópavogsmeistaratitilinn og takk fyrir frábært mót!



Comments