top of page

Ási sigraði 5. umferð SHOT-deildarinnar

8 hours ago
3 min read

Fimmta umferð SHOT-deildar Pílufélags Kópavogs fór fram fimmtudaginn 5. nóvember í Íþróttahúsinu Digranesi. Alls mættu 11 keppendur til leiks og var keppt í tveimur deildum. Spilað var 501, best af fimm leggjum, alla leið.


Frábær stemning var í Digranesi og greinilegt að keppendur voru í miklu stuði þetta kvöld!





Í fyrstu deild spiluðu sex leikmenn, þeir Ási, Kolli, Kristinn, Sævar, Ingi og Hrafn.

Sævar lék mjög vel í riðlakeppninni og tryggði sér efsta sætið með góðri frammistöðu. Ási fylgdi fast á hæla hans og hafnaði í öðru sæti.

Fjórir efstu keppendurnir komust áfram í undanúrslit og þaðan var leikið til úrslita.



Undanúrslit

Sævar – Kristinn 3–0

Sævar mætti Kristni í hörkuleik þar sem pressan var mikil. Sævar hélt þó vel út, sýndi styrk á mikilvægum augnablikum og tryggði sér öruggan 3–0 sigur og sæti í úrslitaleiknum.


Ási – Ingi 3–0

Ási var í miklu stuði gegn Inga og gaf honum engin færi. Hann spilaði vel og sópaði Inga út með sannfærandi 3–0 sigri og tryggði sér sæti í úrslitum.


Æsispennandi úrslitaleikur

Ási – Sævar 3–2

Það var sannkallaður stórleikur þegar Ási og Sævar mættust í úrslitum fimmtu umferðarinnar.

Ási byrjaði af miklum krafti og vann fyrstu tvo leggina, báða á aðeins 18 pílum, og komst í 2–0 forystu.

En Sævar var ekki á því að gefast upp! Hann setti í fluggírinn, vann næstu tvo leggi og jafnaði metin í 2–2. Allt var því undir í oddaleggnum!

Ási byrjaði oddalegginn af miklum krafti og átti tvær frábærar heimsóknir að spjaldinu þar sem hann skoraði yfir 100 stig í bæði skiptin. Hann hélt síðan áfram af sama krafti og kláraði oddalegginn á aðeins 17 pílum og tryggði sér glæsilegan 3–2 sigur!


Ási, stóð að lokum uppi sem sigurvegari 5. umferðar SHOT-deildarinnar!

Pílurnar hans Ása voru heldur betur heitar þetta kvöld! Hann sýndi frábært pílukast og átti meðal annars 14,16,17 og 18 pílna leggi, auk þess að spila leik með yfir 80 í meðaltal (avg).


Guðgeir ósirgrandi í 2. deild

Í annarri deild mættu fimm keppendur til leiks: Guðgeir, Guðjón H., Anna Björg, Bragi og Adam. Guðgeir var í algjörum sérflokki þetta kvöld og sigraði alla sína leiki. Með frábærri frammistöðu tryggði hann sér efsta sæti deildar.

Guðjón H. lék einnig vel og hafnaði í öðru sæti.



180 stigunum rigndi inn!

Það var greinilegt að keppendur voru með pílurnar vel heitar þetta kvöld!

Vel yfir helmingur keppenda náði að henda í 180 stigin góðu í mótinu, sem er frábær árangur. Nokkrir leikmenn gerðu sér meira að segja lítið fyrir og köstuðu 180 oftar en einu sinni! Þetta sýnir vel hversu mikil gæði eru í SHOT-deildinni og hversu öflugir keppendurnir eru orðnir.


Staðan í SHOT-deildinni

Hægt er að fylgjast með stöðunni í deildinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.


Næsta umferð fimmtudaginn 19. nóvember

SHOT-deildin heldur áfram í Íþróttahúsinu Digranesi fimmtudaginn 19. nóvember og má búast við enn meiri spennu þegar keppendur mæta aftur til leiks.

Það verður gaman að fylgjast með hvort Ási haldi áfram á sömu braut, hvort Sævar fylgi eftir góðri riðlakeppni og hvort Guðgeir haldi áfram sigurgöngu sinni í annarri deild.


Langar þig að vera með?

SHOT-deildin er frábær vettvangur fyrir alla sem vilja spila pílukast, öðlast keppnisreynslu og eiga skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap.


Allir eru velkomnir að taka þátt!

  • Þátttökugjald fyrir aðra en félagsmenn PFK er aðeins 1.500 kr.

  • Nánari upplýsingar og skráning á pfk.is.


Pílufélag Kópavogs þakkar öllum keppendum fyrir frábært mót, skemmtilega stemningu og drengilega keppni.


Til hamingju Ási með sigurinn í 1. deild og Guðgeir með glæsilegan árangur í 2. deild!

Áfram PFK! 🎯

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page