Agnes og Kristján sigruðu 501 tvímenning í Digranesi

Þriðjudaginn 27. október fór fram skemmtilegt 501 tvímenningsmót hjá Pílufélagi Kópavogs.
Alls mættu 15 keppendur til leiks, eða átta lið, og keppnishugur og góð stemning meðal þátttakenda.
Keppt var í tveimur riðlum þar sem liðin börðust um sæti í útsláttarkeppninni. Mörg skemmtileg einvígi litu dagsins ljós og ljóst var að ekkert lið ætlaði að gefa eftir án baráttu.
Í A-riðli spiluðu Gulli-Alex, Valdi-Harpa, Kolli-Guðgeir, Elvar-Bjarki. Kolli og Guðgeir spiluð best og sigrðu alla sína leiki. Elvar og Bjarki náðu örðu sæti og Alex Máni og Gulli enduðu í því þriðja. Harpa og Valdi náðu sér ekki á strik og unnu aðeins einn legg.
Í A-riðli spiluðu Jóhannes-Stefán, Ási og Ási með vinstri, Kristinn-Siggi og Kristján og Agnes. Frábærir leikir voru spilaðir og mjög jafnt á flestum tölum. Þrjú pör enduðu öll með tvo vinninga og réðist þá sæti á leggjahlutfalli. Agnes og Kristján náðu fyrsta sætinu þrátt fyrir að tapa gegn Ása með vinsti og hægri. Kristinn og Siggi tók annað sætið. Ási þriðja og Stefán og Jóhannes fjórða.
Útslátturinn var frábær
Kristján-Agnes sigrðu Valda og Hörpu 3-1
Ási og Ási-vinstri sigraði Bjarka og Elvar 3-0
Kolli og Guðgeir sigrðu Jóhannes og Stefán 3-1
Gulli og Alex sigrðu Kristinn og Sigga 3-2
Undanúrslit voru spennandi
Kristján-Agnes sigrðu Ása-+vinstri 3-0
Kolli-Guðgeir sigruðu Gulla og Alex Máni 3-2 í oddaleik.
Agnes og Kristján sterkust í úrslitunum
Til úrslita léku annars vegar Agnes og Kristján og hins vegar Guðgeir og Kolbeinn.
Úrslitaleikurinn var spennandi og sýndu bæði lið góða takta. Agnes og Kristján reyndust þó sterkari þegar á reyndi og tryggðu sér glæsilegan 3–0 sigur!
Pílufélag Kópavogs óskar Agnes og Kristjáni innilega til hamingju með sigurinn og þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna og gott mót.
Viltu taka þátt í næsta móti?
Við hvetjum alla áhugasama, jafnt byrjendur sem lengra komna, til að kynna sér fjölbreytta dagskrá félagsins og næstu viðburði á heimasíðu okkar:
Allir velkomnir!
ÁFRAM PFK!



Comments