Agnes sigraði krikket mót

Þriðjudaginn 27. október fór fram skemmtilegt Krikket kvennamót hjá Pílufélagi Kópavogs (PFK). Alls voru níu konur skráðar til leiks og var keppt í tveimur riðlum áður en leikið var um sæti.
Agnes og Bryndís sjóðandi í riðlakeppninni
Í A-riðli spiluðu Bryndís, Ragna, Helga Skúla og Elín Dögg. Bryndís og Elín spiluðu best og var þetta mjög skemmtileg keppni. Bryndís hafði svo Elínu í lokin.
Í B-riðli spiluðu Birgitta, Agnes, Berglind, Harpa og Díana. Agnes og Díana spiluðu best og voru hörkuleikir hér í gangi. Agnes hafði svo betur gegn Díönu og komst í úrslitaleikinn.
Agnes fagnaði sigri í úrslitaleiknum
Í úrslitaleiknum mættust því Agnes og Bryndís, sem báðar höfðu farið taplausar í gegnum riðlakeppnina. Agnes hélt áfram að sýna frábæra takta og tryggði sér glæsilegan sigur. Þar með stóð hún uppi sem sigurvegari mótsins eftir frábæra frammistöðu og án þess að tapa leik.
Lokaúrslit mótsins
1. sæti – Agnes
2. sæti – Bryndís
3. sæti – Elín Dögg, sem sigraði Díönu.
5. sæti – Birgitta, sem sigraði Helgu.
7. sæti – Ragna, sem sigraði Hörpu.
9. sæti – Berglind
Frábær stemning í kvennapílunni hjá PFK
Pílufélag Kópavogs óskar Agnesi innilega til hamingju með glæsilegan sigur og þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna. Það er einstaklega ánægjulegt að fylgjast með þeim framförum sem eiga sér stað í kvennapílunni hjá félaginu.
Komdu í kvennapílu hjá PFK
Við hvetjum allar konur, jafnt byrjendur sem lengra komnar, til að koma og taka þátt í öflugu og skemmtilegu pílustarfi hjá PFK.
Hjá okkur er lögð áhersla á góða stemningu, frábæran félagsskap og tækifæri fyrir allar til að bæta sig í íþróttinni.
Kynntu þér dagskrá félagsins og næstu viðburði á www.pfk.is.
Allar velkomnar!
ÁFRAM PFK!🎯



Comments