Haraldur Birgisson Kópavogsmeistari í 301 DIDO

Það var frábær stemning og mikil spenna í Íþróttahúsi Digraness þegar Pílufélag Kópavogs hélt Kópavogsmótið í 301 tvöfaldur inn, tvöfaldur út fimmtudaginn 29. október.
Alls mættu 15 keppendur til leiks og var þeim skipt í fjóra riðla. Í fyrsta skipti í sögu PFK var seedað í efstu sætin í riðlunum. Daníel Dagur, Sævar Þór, Ási og Halli B voru seedaðir í hvern riðil.
Í riðlunum voru margir hörku leikir. Ungu leikmennirnir voru að stríða gömul köllunum, Kolli, Ari og Trausti stóðu sig vel og enduðu í öðru sæti sinna riðla. Leikmennirnir sem voru seedaðir unnu sína riðla.
Að riðlakeppninni lokinni tók við 16 manna útsláttarkeppni þar sem keppendur börðust um sæti í úrslitaleiknum.
Þar urðu ein nokkuð óvænt úrslit þar sem Ingi Rafn sigraði Sævar Þór 1-3 en Ingi hafði ekki náð sér á strik í riðlinum, en hann mætti heldur betur á línuna í útslættinum og átti góðan leik. Aðrir leikir voru eftir bókinni.
Í undanúrslitum spiluðu Daníel Dagur og Halli B og sigraði Halli 3-1 í skemmtilegum leik og í hinni viðureigninni sigraði Ási Trausta 3-0 þar sem Ási sýndi flotta takta.
Það voru félagarnir Haraldur Birgisson (Halli B) og Ásgrímur Harðarson (Ási) sem mættust svo í úrslitaleik kvöldsins. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og ljóst að hvorugur ætlaði að gefa neitt eftir.
Úrslitaleikur sem bauð upp á allt!
Halli B byrjaði leikinn af krafti og vann fyrsta legginn. Ási svaraði hins vegar vel fyrir sig, jafnaði metin í 1–1 og komst síðan yfir 2–1. Ási fékk þá gullið tækifæri til að tryggja sér sigurinn 3–1, en náði ekki að nýta færin sín til að klára leikinn. Halli B var hins vegar ekki á því að gefast upp! Hann nýtti tækifærið, jafnaði metin í 2–2 og knúði fram oddalegg. Í oddaleggnum sýndi Halli B styrk sinn, hélt haus og tryggði sér að lokum glæsilegan 3–2 sigur eftir æsispennandi viðureign.
Haraldur Birgisson stóð því uppi sem Kópavogsmeistari í 301 DIDO árið 2026!
Pílufélag Kópavogs óskar Halla B innilega til hamingju með sigurinn og Ása með frábæra baráttu í úrslitaleiknum.
Við þökkum öllum 15 keppendunum kærlega fyrir þátttökuna og frábært pílukvöld í Digraneshöllinni.
Frábært kvöld, frábær stemning og pílukast eins og það gerist best!
Áfram PFK 🎯



Comments