Kári Vagn er Kópavogsmeistari í krikket einmennings 2026

Kópavogsmótið í krikket einmennings var haldið fimmtudaginn 10. september. Átján keppendur mættu til leiks. Dregið var í fjóra riðla og svo var farið í 16 mannaútslátt-áttamannaútsátt-undanúrslit-úrslitleik.
Frábær stemming var í Digranesi þetta kvöldið. Spilað var best af þremur alla leið.
Í A-riðli spilaði Ingi Rafn best og sigraði hann riðilinn sinn.
Í B-riðli spilaði Kristján Sig best og sigraði hann riðilinn sinn.
Í C-riðli spilaði Ási best og sigraði hann riðilinn sinn.
Í D-riðli spilaði Kári Vagn og sigraði hann riðilinn sinn.
Í 16 manna útslættinum léku þeir Ingi og Guðjón H og sigraði Ingi 2-1. Ingi fékk svo Bjarka í 8 manna og sigraði hann 2-0. Vel gert Ingi.
Kári fékk Braga í 16 manna og Kolla í 8 manna, svo Inga í undanúrslitum. Kári sigrað þá alla 2-0 og spilaði frábærlega.
Ási fékk Agnesi í 16 manna og knattspyrnumanninn knáa Valgeir Valgeirsson í 8 manna úrslitum. Bæði Agnes og Valgeir spiluðu vel en Ási var öflugur og vann báða leikina 2-0.
Kristján mætti Elvu í 16 manna og Kristni í 8 manna og svo Ása í undanúrslitum. Kristján er að spila mjög vel þessa dagana og sigraði þau öll 2-0, enda orðinn einn allra besti leikmaður landsins.
Úrslitaleikur Kári Vagn og Kristján.
Tveir af bestu spilurum landsins áttust við og báðir spiluðu frábærlega. Kári Vagn var aðeins betri og sigraði 2-0. Kári Vagn spilaði frábærlega allt mótið og sigraði alla andstæðinga sína 2-0 og varð Kópavogsmeistari í krikket einnennings 2026.
Til hamingju Kári 🎉
Kristján Sig í 2. sæti og þeir Ási Harðar og Ingi Rafn í 3.-4. sæti.
Kári er líka Kópavogsmeistari í 301sido og 501 tvímenningi með Ægi Hafberg.
Næsta Kópavogsmót er handan við hornið og er opið fyrir alla að keppa.
Koma svo 🎯💪🏅🏆
Áfram PFK



Comments