top of page

Agnes sigraði Krikketmót í Digranesi

  • 2 days ago
  • 1 min read


Krikketmót kvenna hjá Pílufélagi Kópavogs

Miðvikudaginn 1. júlí fór fram skemmtilegt krikketmót kvenna hjá Pílufélagi Kópavogs.

Átta keppendur mættu til leiks og var hart barist í góðum anda. Agnes Veronika Hauksdóttir átti frábært mót og sigraði alla sína leiki. Í úrslitum mætti hún Steinunni og tryggði sér sigurinn með öruggum leik.


Lokastaðan var:

1. Agnes Veronika Hauksdóttir

2. Steinunn

3-4. Elva 4.

3-4. Harpa

Í sætum 5.–8. urðu þær Asta, Inga, Bryndís og Helga.


Næsta þriðjudag, 7. júlí, verður haldið 301 mót fyrir konur. Mótið hefst kl. 19:30 og húsið opnar kl. 19:00. Þátttökugjald er 1.500 krónur, en frítt er fyrir félagsmenn.


Við óskum Agnesi innilega til hamingju með sigurinn og þökkum öllum þátttakendum fyrir skemmtilegt mót. Vonumst til að sjá sem flestar á 301 mótinu!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page