top of page

Anna Björg sigraði 301 kvenna🎯

  • 12 minutes ago
  • 1 min read

Það var sannkölluð pílustemning og mikil spenna í Digraneshöllinni föstudaginn 28. ágúst þegar haldið var 301 kvennamót.


Alls mættu sex konur til leiks og var fyrirkomulagið þannig að allar spiluðu gegn öllum. Leikirnir voru spilaðir best af þremur leggjum, sem gaf lítið svigrúm fyrir mistök og hver leikur gat skipt miklu máli í baráttunni um efstu sætin.


Það var greinilegt að keppnisskapið var í hávegum haft en á sama tíma ríkti frábær stemning, mikið stuð og gleði í húsinu.


Eftir spennandi kvöld stóð Anna Björg upp sem sigurvegari, vann alla sína leiki og tapaði aðeins tveimum leggjum. Í öðru sæti var Steinunn Sævars sem var með einum legg betra en Unnur Karls. Hart barist um hvert sæti og mikil keppnisandi í leikmönnum.


Pílufélag Kópavogs þakkar konunum kærlega fyrir frábært kvöld!

Það er mikil gróska í kvennapílunni hjá PFK og vonandi sjáum við enn fleiri konur mæta á næsta mót.


KOMDU, KASTAÐU OG VERTU MEÐ!


PFK heldur reglulega pílunámskeið, mót og æfingar fyrir félagsfólk og áhugasama.

Fylgist með öllum komandi mótum og viðburðum á heimasíðu Pílufélags Kópavogs með því að smella á „Viðburðir PFK“.


Áfram PFK


 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page