top of page

Anna Björg sigraði 301 kvennamót

Apr 16
1 min read

Frábært 301 byrjendamót fyrir konur var haldið mánudaginn 13. apríl í Digraneshöllinni.

21 kona mætti til leiks og var skipt í fjóra riðla. Svo var farið í 16 kvenna útslátt.

Skemmtilegir leikir og margir mjög jafnir. Mikil fagnaðarlæti heyrðust reglulega þegar leggir voru teknir út á tvöföldum reit og margar í hópnum að stíga sín fyrstu skref í keppni. Nokkur há útskot voru tekin út þetta kvöldið.

Áfram konur 🎯









Við óskum Önnu til hamingju og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!


Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót,

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page