Anna Björg sigraði 501kvennamót
- Apr 30
- 1 min read
Updated: 5 days ago

Mánudaginn 27. apríl var haldið 501 mót kvenna. Alls mættu 13 konur til leiks og var skipt í þrjá riðla. Eftir riðla var farið í útslátt þar sem allar komust áfram úr riðlum. Spilað var best af þremur alla leið. Mikið fjör var og gleðihróp glumdu reglulega um Digraneshöllina þegar leikmenn tóku út og unnu leggi og leiki. Margir frábærir leikir voru spilaðir. Anna Björg var í miklu stuði, tapaði ekki leik og tapaði aðeins tveimum leggjum í mótinu öllu.
Vel gert Anna.




Við óskum Önnu Björgu til hamingju með sigurinn og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!
Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.



Comments