top of page

Arnar og Ari sigruðu Pingpong.is mótröðina 2026.

  • 1 day ago
  • 1 min read

Pingpong.is mótaröðin var haldin í sumar hjá Pílufélag Kópavogs. Alls voru sex mót haldin á um í maí, júni og júlí, c.a með tveggja vikna fresti og tóku um 25 keppendur þátt.


Keppendunum var skipt í tvo flokka, annars vegar 12 ára og yngri og hins vegar 13 ára og eldri. Mikil spenna var í yngri flokknum þar sem keppnin var afar jöfn. Oft munaði aðeins einu eða tveimur stigum á efstu sætunum og því þurfti að berjast um hvert einasta stig.


Arnar stóð uppi sem sigurvegari í yngri flokknum eftir mjög góða frammistöðu í mótaröðinni. Maximus hafnaði í öðru sæti eftir harða keppni allt til loka.


Í eldri flokknum var einnig mikil spenna. Ari átti frábæra mótaröð og sigraði þrjú af sex mótum, sem tryggði honum efsta sætið samanlagt. Jökull Þór átti einnig mjög góða frammistöðu og endaði í öðru sæti.


Það er því ljóst að framtíðin er björt hjá Pílufélagi Kópavogs. Strákarnir hafa sýnt mikinn metnað, tekið framförum og staðið sig frábærlega í sumar. Þessi reynsla mun án efa nýtast vel þegar keppnistímabilið heldur áfram.


Við hjá Pílufélagi Kópavogs erum stolt af strákunum og hlökkum til að fylgjast með þeim halda áfram að æfa, keppa og taka framförum.


Til hamingju Arnar og Ari – og allir okkar keppendur með frábæran árangur!


Áfram PFK!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page