top of page

Atli og Sævar Kópavogsmeistarar í 301 DIDO tvímenningi

  • 5 hours ago
  • 1 min read

Kópavogsmótið í 301 tvöfaldur inn og tvöfaldur út tvímenningi fór fram fimmtudaginn 21. maí. Alls mættu 12 pör til leiks og var keppendum skipt í tvo riðla.


Að riðlakeppni lokinni tóku við 8 para úrslit en einnig var keppt um Forsetabikarinn fyrir þau lið sem komust ekki í aðalúrslitin. Allir leikir mótsins voru spilaðir best af fimm leggjum.


Í A-riðli spiluðu Atli og Sævar vel og unnu alla sína leiki. Í B-riðli var meiri spenna þar sem Ási og Bjarni stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða og skemmtilega keppni.

Bæði þessi sterkustu pör riðlakeppninnar héldu áfram sigurgöngu sinni í 8 para úrslitum og undanúrslitum og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum. Þar mættust þau í jöfnum og spennandi leik þar sem allt var undir og spennan í Digraneshöllinni áþreifanleg.

Það voru þó Atli og Sævar sem reyndust sterkari á lokasprettinum og sigruðu úrslitaleikinn

3–1. Með sigrinum tryggðu þeir sér titilinn Kópavogsmeistarar í 301 dido tvímenningi 2026.

Í þriðja til fjórða sæti urðu hinir efnilegu Ari / Jökull Þór og Kolli / Guðgeir.


Hér eru öll keppnispörin



Hèr eru öll úrslit.



Í Forsetabikarnum spiluðu

Feðgarnir Björn og Tómas sigruðu feðgana Kristján og Kristján í skemmtilegum úrslitaleik.
Feðgarnir Björn og Tómas sigruðu feðgana Kristján og Kristján í skemmtilegum úrslitaleik.


Pílufélag Kópavogs óskar Atla og Sævari innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar öllum þátttakendum fyrir mætinguna og skemmtilegt mót  – næsta mót er rétt handan við hornið!


Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.





 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page