top of page

Björn sigaði 501 mót.

  • 5 hours ago
  • 1 min read

Fimmtudaginn 6. ágúst var spilað 501 mót hjá Pílufélagi Kópavogs.

Sex keppendur mættu til leiks og var spilað í einum riðli. Hörkuleikir voru í mótinu og mikil stemning ríkti yfir kvöldinu.


Það var Björn Magnús Tómasson sem stóð uppi sem sigurvegari eftir frábæra frammistöðu, en hann sigraði alla sýna leiki. Björn hefur verið í góðu formi undanfarið og sýndi það svo sannarlega í þessu móti.


Aðrir keppendur voru Adam John Gerald, Bragi, Jökull Þór, Guðjón H. og Steinunn, sem öll lögðu sitt af mörkum til að gera kvöldið skemmtilegt og spennandi.  


🎯Næsta mót er fimmtudaginn 13. ágúst og þá verður spilað Scolia-mót með riðlakeppni og útslætti. Við hvetjum alla til að mæta, taka þátt og eiga skemmtilegt pílukvöld með okkur!


Sjáumst við píluna hjá PFK!🎯

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page