top of page

Elva sigraði sitt fyrsta mót !🎯🏆

  • 2 days ago
  • 1 min read

Krikketmót kvenna hjá Pílufélagi Kópavogs


Miðvikudaginn 21. júlí fór fram skemmtilegt krikketmót kvenna hjá Pílufélagi Kópavogs.

Fimm keppendur mættu til leiks og var hart barist í góðum anda. Elva Rut Jonsdóttir átti frábært mót og stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi keppni. Þetta var jafnframt hennar fyrsti sigur á móti – innilega til hamingju, Elva!🎯


Bryndís Birgisdóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Hanna Kristín Hannesdóttir og Helga Kjartansdóttir sýndu einnig góð tilþrif og tóku þátt í skemmtilegri keppni.


Við hjá Pílufélagi Kópavogs viljum minna á að meistaraflokksæfingar kvenna eru nú hafnar.


Við höldum einnig áfram með vinsælu pílunámskeiðin okkar fyrir konur, þar sem áhersla er lögð á að læra undirstöðuatriði pílukasts, bæta sig og síðast en ekki síst hafa gaman og kynnast nýju fólki í góðum félagsskap. 🎯💪


Skráning: Sendið póst á pfk@pfk.is


Áfram konur!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page