Elín Dögg og Kári Vagn sigruðu 1. umferð í Dartung
- pfk111
- 2 days ago
- 1 min read
Updated: 2 days ago

Dartung var haldið á Ásbrú í Reykjanesbæ í aðstöðu Pílukastfélags Reykjanesbæjar laugardaginn 31. janúar. Fimmtán leikmenn barna- og unglingaflokks Pílufélag Kópavogs tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Dartung er mótaröð Íslenska Pílukastsambandsins.

Í flokki stúlkna 9-13 ára sigraði Elín Dögg Baldursdóttir.
Elín vann fimm af sex leikjum sem hún spilaði.

Í flokki drengja 9-13 ára urðu Ísak Máni Jóhannsson og Hlynur Nói Bjarkason í 3.-4. sæti. Í sæti 5.-8. urðu Jökull Þór Sveinsson, Þórarinn Skúli Eldjárn og Kári Freyr Magnússon. Í 9.-16. sæti urðu Alexander Freyr Sigurþórsson, Bjarki Þór Magnússon og Jónas Jökull Einarsson.

Í flokki 14-18 ára drengja sigraði Kári Vagn Birkisson. Kári spilaði frábærlega undanúrslitin og úrslitaleikinn. Hann var með 16 og 17 pílna leggi og með 66 og 69 avg í leikjunum.
Í 5.-8. sæti varð Kolbeinn Gestur Guðgeirsson. Í 9.-16. sæti voru Tómas Orri Björnsson, Gabríel Gíslason og Ari Björnsson.
Öll unnu ungmennin fullt af leikjum, sumir að spila sína fyrstu leiki í móti. Frábær árangur hjá þeim öllum og við sjáum miklar framfarir hjá þeim og hlökkum til næstu mánaða með þeim.
Einnig er hægt að horfa á einhverja leiki í útsláttarkeppni á Live darts Iceland
Stigalisti DARTUNG 2026 er kominn inn, bara að smella á hann.
Við minnum á næstu mót og viðburði hjá okkur sem er að finna á Viðburðir PFK.
ÁFRAM PFK, ALLA LEIÐ



Comments