top of page

Frábær árangur hjá Pílufélagi Kópavogs á Akureyri

  • 1 day ago
  • 1 min read

Updated: 14 hours ago


Leikmenn frá Pílufélagi Kópavogs fóru til Akureyrar í dag og kepptu í 3. umferð Dartung-mótaraðarinnar með glæsilegum árangri.


Í 9–13 ára drengjaflokki stóð Ísak Máni uppi sem sigurvegari eftir frábæra frammistöðu. Þá náðu Hlynur Nói og Jökull Þór einnig frábærum árangri og enduðu báðir í 3.–4. sæti flokksins. Þórarinn Skúli var hársbreidd að komast í undanúrslti, en varð í 5-8 sæti. Kári Freyr og Maximus Dicamillo voru óheppnir að komast ekki í 16 mannaútslátt en þeir unnu baðir einn leik. En Maximus að spila í sínu fyrsta Dartung.


Í 9–13 ára stúlknaflokki sigraði Elín Dögg með glæsibrag og Karías hafnaði í öðru sæti eftir sterka keppni.


Í 14-18 ára drengjaflokki varð Kári Vagn í 5-8 sæti. Tómas og Ari í 9-16 sæti


Hægt er að skoða leikina hér á dartconnect


Þetta er einstaklega góður árangur hjá unga fólkinu úr Pílufélagi Kópavogs og ljóst að framtíð félagsins er björt. Til hamingju öll með daginn og glæsilega frammistöðu!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page