Fyrsta Pílumót PFK eingöngu fyrir konur
- 3 days ago
- 2 min read

Mikil eftirvænting og stuð var í Digranesi mánudaginn 30. mars þar sem fyrsta Pílumót PFK eingöngu fyrir konur var haldið. Met aðsókn var en alls mættu 27 konur til leiks. Spilað var 501 beint inn og tvöfaldur út, best af þremur alla leið. Skipt var í fjóra riðla, sjö leikmenn í þremur riðlum og sex í einum. Allar fengu fullt af leikjum og lang flestar að spila í sínu fyrsta pílumóti. Tvær landsliðskonur mættu og nokkrar fengu tækifæri til að vinna þær.

Í riðli eitt voru skemmtilegir leikir. Jónína sigraði alla sína leiki án þess að tapa legg. Inga María, Margrét og Heiðrún voru jafnar með þrjá vinninga en leggjahlutfall skildi að milli annars og fjórða sætis.


Riðill tvö var hnífjafn. Agnes, Unnur og María Björg voru allar með fimm vinninga og það var leggjahlutfall sem skildi að hver skyldi vinna. Agnes sigraði með einum legg. Allar stóðu sig vel og eiga eftir að gera vel á næstu árum.


Sandra Guðlaugs sigraði alla sína leiki án þess að tapa legg. Mikil barátta var um hin sætin en Harpa tók annað sætið og Hafdís það þriðja á betra leggjahlutfalli en Sandra J sem lenti í fjórða sæti.


Landsliðskonan Steinunn Dagný sigraði D riðil. Steinunn Sævars var í öðru og Ásta Sigurjóns í því þriðja. Ragna B tók fjórða sætið. Mikil keppni var í gangi í þessum riðli og margir spennandi leikir spilaðir.


Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!
Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót,
Við þökkum Pingpong.is fyrir verðlaunin og mælum með þeirri verslun. Frábærar vörur og mjög góð þjónusta.
Einnig viljum við minna konur á Pílunámskeið fyrir konur sem byrjar miðvikudaginn 8.apríl. Tveir hópar: Hópur 1. byrjar kl: 19:00-20:00 og hópur 2. byrjar kl: 20:00-21:00. Skráning er með að senda póst á pfk@pfk.is



Comments