Fyrsti sigur Ása í Bull's Deildinni
- 2 days ago
- 1 min read

Áttunda umferð í Bull's deildinni fór fram fimmtudaginn 5. mars, umferð átta af 11. Alls mættu 22 leikmenn til leiks og var skipt niður í þrjár deildir. Spilað var 501 best af 5 alla leið. Spiluð undanúrslit og úrslitaleikur í efstu og neðstu deild.
Frábærir leikir og mörg 180 tekin. Leikmenn að spila á 14-15-16 pílu leiki í Digranesinu þetta kvöldið. Nokkrir leikir yfir 80 avg og margir yfir 70 avg
Niðurstaða efstu deildar var sú að loksins vann Ási Kára Vagn í hörku úrslitaleik sem fór all leið í odda.
Til hamingju Ási með sigurinn.



Hér er stigataflan bara smella á hana til að skoða hana.
Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 12. mars.
Húsið opnar kl: 19:00 og mótið byrjar kl:19:30.



Comments