top of page

Guðgeir og Kolbeinn Kópavogsmeistarar í krikket tvímenningi 2026 🏆

  • 18 minutes ago
  • 1 min read

Það var frábær stemning í Digraneshöllinni þegar sex pör mættu til leiks í Kópavogsmótið í krikket tvímenningi. Leikirnir voru jafnir og spennandi og greinilegt að ekkert var gefið eftir við spjaldið.


Í riðlakeppninni stóðu Ási og Bjarni sig vel og tryggðu sér sæti í undanúrslitum gegn Kristni og Bjarka. Þar sýndu þeir flotta takta og unnu örugglega 3–1.


Í hinum undanúrslitaleiknum mættust þeir Ingi og Arnór og feðgarnir Guðgeir og Kolbeinn. Feðgarnir voru í miklu stuði og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með sannfærandi 3–0 sigri.


Háspenna í úrslitaleiknum

Úrslitaleikurinn varð síðan mikill spennuleikur.  Guðgeir og Kolbeinn byrjuðu vel og komust í 2-0 en Ási og Bjarni komu til baka og jöfnuðu 2-2. Leikurinn fór alla leið í oddalegg og þar byrjuðu feðgarnir betur en allt var stál í stál í lokin. Ási átti ágætis uppstillingu í útskot en hefði þurft að hitta eina í þrefaldan sem gekk ekki. Guðgeir stillti upp á s18 og lokaði bullinu glæsilega og feðgarnir unnu 3–2. Frábær leikur í alla staði.


Guðgeir og Kolbeinn eru því Kópavogsmeistarar í krikket tvímenningi! 🏆


Frábært kvöld í Digraneshöllinni, sex sterk pör, hörkuleikir og mikil stemning. Til hamingju Guðgeir og Kolbeinn – vel gert! 🎯


Pílufélag Kópavogs óskar öllum keppendum til hamingju með frábært mót!

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page