Heiðrún og Unnur sigruðu 301 tvímenningur kvenna
- 5 days ago
- 1 min read

Það var mikil stemning og gleði í Digranesi, þegar 301 tvímenningur kvenna var haldið þann 20. apríl í fyrsta skipti í sögu PFK.
20 konur mættu til leiks og mynduðu þær 10 pör. Skipt var í tvo fimm para riðla og svo var farið í átta para útslátt.
Að lokum voru það systurnar Heiðrún og Unnur Líndal sem sigruðu þær Önnu og Agnesi 2-1 í úrslitaleik.




Við óskum Heiðrúnu og Unni Líndal til hamingju með sigurinn og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!
Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.



Comments