top of page

Kolbeinn Gestur Kópavogsmeistari í 101🏆

  • 2 hours ago
  • 2 min read

Spennan var mikil á 101-mótinu í Digraneshöllinni á fimmtudagskvöld, þar sem 10 keppendur mættu til leiks og börðust um Kópavogsmeistaratitilinn í 101.


Keppt var í tveimur riðlum og síðan tók útsláttarkeppnin við. Strax í riðlakeppninni var ljóst að lítið mátti út af bregða, enda margir leikir afar jafnir og spennandi.


Sævar sterkastur í A-riðli

Í A-riðli var Sævar Þór sterkastur og vann alla sína leiki. Hann lenti þó í mikilli baráttu gegn Adam í síðasta leik riðilsins. Leikurinn fór í oddalegg og Adam átti góða möguleika á að klára leikinn, en reynslan sagði til sín þegar mest á reyndi og Sævar tryggði sér sigurinn. Ási hafnaði í öðru sæti, Adam í því þriðja, Kristinn í fjórða og Jökull í fimmta sæti. Adam, Kristinn og Jökull voru allir jafnir að stigum og því réði leggjahlutfall sætaröðinni.


Kolli lét til sín taka í B-riðli

Í B-riðli var Kolbeinn Gestur, eða Kolli, í miklu stuði. Hann fann sig vel við spjaldið og vann alla sína leiki í riðlinum.


Kolli lenti þó í erfiðum leik gegn Braga sem fór alla leið í oddalegg. Siggi varð annar í riðlinum, en næstu þrír keppendur voru jafnir að stigum. Þar réði leggjahlutfall sætaröðinni og urðu Björn Birgis þriðji, Bragi fjórði og Guðjón H. fimmti.

Kolli átti meðal annars tveggja píla legg og sýndi að hann var kominn til að berjast um titilinn.


Úrslitin

í 16-manna útslættinum

Jökull Þór - Bragi 4-3

Guðjón H - Kristni 4-1


Í 8-manna útslættinum var hart barist.

Sævar Þór – Jökull 5–0

Adam – Siggi 0–5

Kolbeinn Gestur – Guðjón 5–2

Ási – Birnir Birgis 5–3


Þar með voru Sævar, Siggi, Kolli og Ási komnir í undanúrslit.

Í undanúrslitunum hélt Sævar áfram á fljúgandi siglingu og vann Sigga 6–0, en Kolli hafði betur gegn Ása 6–2.


Æsispennandi úrslitaleikur

Sævar Þór gegn Kolbeini Gesti: 6–7


Úrslitaleikurinn var sannkallaður naglbítur.


Sævar byrjaði leikinn frábærlega og komst fljótt yfir. Kolli gafst þó ekki upp og jafnaði aftur og aftur. Þeir skiptust á að taka leggi og spennan jókst með hverjum legg.


Þegar komið var að lokasprettinum virtist Sævar vera að hafa þetta þegar hann komst í 6-5. Kolli sýndi hins vegar mikinn karakter, hélt ró sinni og barðist til síðustu pílu. Hann náði að taka síðustu tvo leggina og tryggði sér þar með 7–6 sigur eftir einn allra mest spennandi úrslitaleik ársins.


Kópavogsmeistari í 101

Kolbeinn Gestur er því Kópavogsmeistari í 101 hjá Pílufélagi Kópavogs.


Glæsilegur árangur hjá Kolla sem sýndi mikla seiglu og styrk þegar mest á reyndi.

Til hamingju, Kolbeinn!

Frábært mót, góðir leikir og skemmtilegt kvöld að baki.


Næsta mót má sjá á heimasíðu Pílufélags Kópavogs: www.pfk.is/vidburdir

Allir velkomnir í Digranes!

Áfram PFK!🎯

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page